Heiðruð fyrir vísindastarf á Landspítala
22. maí 2026
Ólafur Skúli Indriðason er heiðursvísindamaður Landspítala árið 2026 og Auður Anna Aradóttir Pind er ungur vísindamaður Landspítala árið 2026.

Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, Auður Anna Aradóttir Pind, ungur vísindamaður Landspítala, Ólafur Skúli Indriðason, heiðursvísindamaður Landspítala, og Karl Andersen, formaður Vísindaráðs.
Heiðursvísindamaður Landspítala

Heiðursvísindamaður Landspítala árið 2026 er Ólafur Skúli Indriðason, sérfræðingur í nýrnalækningum. Ólafur Skúli lauk kandidatsprófi frá læknadeild Háskóla Íslands (HÍ) árið 1987. Hann nam almennar lyflækningar við Hartford-sjúkrahúsið og Connecticut-háskóla í Bandaríkjunum og fór síðan til Duke University í Norður-Karólínu þar sem hann lagði stund á sérnám í nýrnalækningum og útskrifaðist árið 1996. Á þeim tíma sem hann var við Duke háskóla lauk hann einnig meistaranámi í tölfræði lýðheilsuvísinda (MHS) árið 1997. Ólafur Skúli hefur síðan starfað við nýrnalækningar á Landspítala og samhliða því starfi unnið að vísindarannsóknum.
Ólafur Skúli er afkastamikill vísindamaður. Hann hefur birt 113 ritrýndar vísindagreinar, flestar í alþjóðlegum vísindaritum. Tilvitnanir í greinar hans eru yfir sex þúsund og H-index (Scopus) er 39. Ólafur Skúli hefur leiðbeint átta nemum í doktorsnámi, fimm í meistaranámi og fjölda BSc-nema. Hann er vinsæll kennari og hefur unnið ötullega að framþróun nýrnalækninga á Landspítala.
Ungur vísindamaður Landspítala

Ungur vísindamaður Landspítala ársins 2026 er Auður Anna Aradóttir Pind ónæmisfræðingur. Auður Anna lauk meistaranámi frá læknadeild HÍ árið 2015 og varði síðan doktorsritgerð sína við sama skóla árið 2022. Rannsóknir Auðar Önnu snúa að ónæmissvörum nýburamúsa við bólusetningum. Auður Anna hefur kynnt rannsóknarniðurstöður sínar á fjölmörgum innlendum og erlendum ráðstefnum. Hún hefur tekið virkan þátt í kennslu við ónæmisfræðideild og fékk verðlaun fyrir kynningu sína á Vísindum á vordögum á síðasta ári. Hún hefur hlotið margvíslega styrki, m.a. nýdoktorastyrk HÍ, styrki frá Rannsóknarsjóði og Tækniþróunarsjóði RANNÍS sem og frá Vísindasjóði Landspítala.
Hér má sjá myndband af þessum hluta ársfundarins:
