Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Heiðranir starfsfólks á ársfundi Landspítala 2025

20. maí 2025

Fimm einstaklingar og fjögur teymi voru heiðruð á ársfundi Landspítala sem fór fram í Hörpu 16. maí.

Á hverju ári heiðrar Landspítali starfsfólk sem hefur skarað fram úr og lagt sitt af mörkum til starfsemi spítalans svo eftir er tekið.

Heiðrað er í flokkum sem samsvara gildum spítalans: Umhyggja, fagmennska, öryggi og framþróun. Að auki er heiðrað í flokknum „vinnustaðurinn okkar“ þar sem heiðraðir eru traustir vinnufélagar sem gera vinnudaginn betri.

Fjölmargar tilnefningar bárust en það er ekki aðeins samstarfsfólk sem getur tilnefnt heldur einnig sjúklingar, aðstandendur og sjúklingasamtök.

Þeir einstaklingar sem voru heiðraðir í ár fengu verkið Á eftir listakonuna Ástu Fanneyju Sigurðardóttur.

Ásta Fann­ey er tal­in einn af fremstu gjörn­ingalista­mönn­um lands­ins. Hún hef­ur sýnt og flutt verk sín á söfn­um og hátíðum víða um heim og verður full­trúi Íslands á Fen­eyja­tvíær­ingn­um í mynd­list árið 2026 en tví­ær­ing­ur­inn er tal­inn einn mik­il­væg­asti vett­vang­ur sam­tíma­list­ar á heimsvísu.

Verkið Á er prentverk í ótakmörkuðu upplagi en hvert verk er þó einstakt þar sem Ásta stimplar árfarveginn á hvert verk fyrir sig. Þar sem áin endar á hverju blaði tekur hún við á því næsta og þannig flæðir hún áfram í gegnum verkin. Verkið á rætur sínar í gjörningi sem Ásta sýndi á samtímalistasafninu í Tókýó árið 2023.

Einstaklingar sem voru heiðraðir, ásamt umsögn:

Halla Ósk Halldórsdóttir, ljósmóðir á fæðingarvaktFlokkur heiðrunar: Öryggi„Halla stendur framarlega í starfi við sí- og endurmenntun ljósmæðra í skipulagi og kennslu við PROMPT-námskeiðin í tengslum við meðgöngu, fæðingu og sængurlegu, svo og við umönnun nýbura. Hún er einnig mikil og góð fyrirmynd sem ljósmóðir á 23B.“

Sigrún Sigurfljóð Snorradóttir, hjúkrunarfræðingur á gjörgæslu HringbrautFlokkur heiðrunar: Umhyggja„Sigrún er yndisleg manneskja sem er alltaf með faðminn opinn. Hún er óhrædd við að sýna umhyggju í einstaklega erfiðum tilfellum og nálgast fólk á þeim stað sem það er hverju sinni, hvort sem það er með alúð, samhygð eða gamansemi.“

Ríkarður Sigfússon, sérfræðingur í bæklunarskurðlækningumFlokkur heiðrunar: Framþróun„Ríkarður hefur lyft grettistaki í gerviliðsskurðlækningum Landspítala. Verið virkur í kennslu deildar- og sérnámslækna. Einstaklega þægilegt að leita ráða frá honum og maður kemur aldrei að tómum kofanum.“

Jenný Sigurlína Níelsdóttir, sjúkraliði á Laugarási meðferðargeðdeildFlokkur heiðrunar: Vinnustaðurinn okkar„Jenný er klettur í starfsemi Laugarássins, hún er skipulögð og lausnamiðuð, hefur einstakt auga fyrir þörfum hvers einstaklings og mætir fólki þar sem það er statt og hvetur áfram.“

Jóhanna Guðrún Pálmadóttir, sérfræðingur í meltingarsjúkdómum barna á Barnaspítala HringsinsFlokkur heiðrunar: Fagmennska„Jóhanna Guðrún hefur verið leiðandi í að þróa verklag, einfalda ferla og stytta biðtíma barna sem leita til Barnaspítala Hringsins vegna meltingavandamála. Hún er einstaklega samviskusöm og umhugað að þjónustan við börnin sé sem allra best og spítalinn nýtur góðs af framlagi hennar til barnalækninga og meltingasjúkdóma barna.“

Teymi sem voru heiðruð, ásamt umsögn:

FasteignaþjónustanFlokkur heiðrunar: Vinnustaðurinn okkar„Ég dáist að hópi iðnaðarmanna sem starfar á spítalanum, þeir eru fljótir að bregðast við beiðnum og leysa úr öllum verkefnum með bros á vör. Það er mikill fengur fyrir Landspítala að hafa svona öfluga iðnaðarmenn í sínum röðum.”

TransteymiðFlokkur heiðrunar: Framþróun„Þetta teymi er búið að takast á við áskorun eftir áskorun og vera á tánum við að finna lausnir. Auk þess að finna tíma til að sinna símenntun. Þjónustan er orðin ein af flottustu transteymum sem að finnst á alþjóðavísu.“

FótameinateymiðFlokkur heiðrunar: Fagmennska„Undanfarin fimm ár eða svo hefur teymið unnið markvisst að því að koma á fót fyrstu og enn sem komið er einu samþættu þjónustunni fyrir sykursýkissár á Íslandi. Þessi þjónusta hefur bætt snemmbæra greiningu, meðferð og forvarnir fyrir sjúklinga um allt land.“

Sondueftirlit VökudeildarFlokkur heiðrunar: Öryggi„Eftirlit með börnum sem útskrifast af Vökudeild hefur orðið til þess að börnin komast mun fyrr heim en áður var í faðm fjölskyldunnar sem er mjög mikilvægt fyrir vellíðan allra fjölskyldumeðlima. Einnig er það mikilvægt fyrir betri nýtingu á dýrmætum sjúkrahúsplássum á gjörgæsludeild nýbura.“

Hér fyrir neðan má sjá heiðranir starfsfólks:

https://www.youtube.com/embed/3XgiNA6s6nM?si=6%5F1aOv4HLWH7NWtk&start=7476