Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Heiðranir starfsfólks á ársfundi Landspítala

22. maí 2026

Fimm einstaklingar og eitt teymi voru heiðruð á ársfundi Landspítala sem fór fram í Hörpu í dag.

Magnús, Ellen, Elín, Jóhann, Hjördís og Viktor Ellertsson, fyrir hönd veitingaþjónustunnar, ásamt Gunnari Ágústi Beinteinssyni, framkvæmdastjóra rekstrar og mannauðs, og Runólfi Pálssyni, forstjóra.

Á hverju ári heiðrar Landspítali starfsfólk sem hefur skarað fram úr í störfum sínum og lagt sitt af mörkum til starfsemi Landspítala svo eftir sé tekið.

Heiðranir eru veittar í flokkum sem endurspegla gildi Landspítala: umhyggju, öryggi, fagmennsku og framþróun. Auk þess er veitt heiðrun í flokknum Vinnustaðurinn okkar, þar sem sjónum er beint að traustum vinnufélögum, sem stuðla að góðum starfsanda og gera vinnudaginn betri.

Í ár bárust fjölmargar tilnefningar, en tilnefningar geta komið frá samstarfsfólki, sjúklingum, aðstandendum og sjúklingasamtökum.

Þeir einstaklingar sem eru heiðraðir í ár fá verkið Straum (2026) eftir listakonuna Þórdísi Erlu Zoëga. Þórdís Erla er myndlistarkona sem hefur skapað sér nafn bæði hérlendis og erlendis. Hún vinnur meðal annars með skúlptúra, málverk og myndbönd og hafa verk hennar verið sýnd víða um heim. Þess má einnig geta að Þórdís Erla bar sigur úr býtum í samkeppni meðal listamanna um nýtt útilistaverk við nýjan Landspítala.

Einstaklingar sem voru heiðraðir, ásamt umsögn:

Hjördís B. Tryggvadóttir, sérfræðingur í klínískri sálfræði á meðferðareiningu geð- og fíknisjúkdóma

Flokkur heiðrunar: Umhyggja

„Hjördís sýnir umhyggju í öllu sínu starfi. Hún sinnir sjúklingum af fagmennsku og hlýju og smitar þessi gildi út frá sér til samstarfsfólks. Hjördís er lykilstarfsmaður á geð- og fíkniþjónustu og hefur ítrekað veitt dýrmætan stuðning í kjölfar alvarlegra atvika.”

Elín Ögmundsdóttir, sérfræðingur í gjörgæsluhjúkrun nýbura á Vökudeild

Flokkur heiðrunar: Öryggi

„Elín hefur lyft grettistaki í að efla fræðslu innan deildarinnar. Hún heldur utan um fræðslu nýs starfsfólks og er ötul í að hvetja samstarfsfólk til sí- og endurmenntunar. Hún hefur næmt auga fyrir hæfileikum annarra og styður samstarfsfólk til að verða góðar fyrirmyndir, sem styrkir bæði faglegt öryggi starfsfólks og öryggi sjúklinga.“

Jóhann Róbertsson, sérfræðingur í handaskurðlækningum

Flokkur heiðrunar: Fagmennska

„Jóhann er framúrskarandi á sínu fagsviði. Hann hefur einstaklega góða nærveru og er ávallt reiðubúinn að hlusta og veita ráðgjöf. Þolinmæði og jákvæðni einkenna samskipti hans. Hann er sterk fyrirmynd, bæði faglega og persónulega.“

Magnús Konráðsson, sérfræðingur í skurðlækningum og sérhæfðum speglunum meltingarvegar

Flokkur heiðrunar: Framþróun

„Magnús hefur af mikilli framsýni byggt upp meltingarspeglanir á Landspítala ásamt góðu samstarfsfólki. Sérstaka athygli vekur hversu sterk starfsemin er á sviði sérhæfðra speglana, en þar býður sjúkrahúsið upp á þjónustustig sem stenst samanburð við sum mun stærri sjúkrahús erlendis. Það starf sem Magnús hefur unnið verður seint fullþakkað.“

Ellen Stefanía Björnsdóttir, hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku

Flokkur heiðrunar: Vinnustaðurinn okkar

„Ellen er leiðtogi innan bráðahjúkrunar á Landspítala. Hún er sú sem samstarfsfólk leitar til vegna reynslu sinnar, þekkingar og innsýnar. Hún er fyrirmynd og frábær samstarfsfélagi sem sýnir einstaka hlýju, fagmennsku og gleði í starfi. Framlag Ellenar til Landspítala er ómetanlegt. Þar sem Ellen er þar er gaman“.

Teymi sem var heiðrað, ásamt umsögn:

Veitingaþjónustan

Flokkur heiðrunar: Vinnustaðurinn okkar

„Veitingaþjónustan sýnir bæði fagmennsku og metnað í störfum sínum. Undanfarin misseri hafa orðið markverðar framfarir í gæðum máltíða sem hafa jákvæð áhrif á líðan sjúklinga og aðstandenda og vinnudag starfsfólks. Með þessu mikilvæga framlagi gegnir veitingaþjónustan lykilhlutverki í daglegri starfsemi spítalans og er vel að heiðrun komið.“

Hér fyrir neðan má sjá heiðranir starfsfólks: