Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Heiðranir Landspítala - auglýst eftir tilnefningum

4. febrúar 2025

Landspítali óskar eftir tilnefningum til heiðrana fyrir ársfund spítalans.

Þá er starfsfólk heiðrað fyrir góð störf en markmiðið er að varpa ljósi á það fjölbreytta starf sem unnið er á Landspítala og hvernig starfsfólk leggur sig fram um að sýna umhyggju og fagmennsku í starfi og tryggja góða þjónustu við sjúklinga. Tilnefningarnar geta komið frá starfsfólki, sjúklingum, aðstandendum, stjórnendum og sjúklingasamtökum.

Heiðranirnar eru í fimm flokkum:

  • Umhyggja

  • Öryggi

  • Fagmennska

  • Framþróun

  • Vinnustaðurinn okkar

Tilnefningum þarf að skila með rökstuðningi og í gegnum sérstakt form sem má nálgast hér.