Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Heiðranir á ársfundi Landspítala - Fasteignaþjónustan

19. ágúst 2025

Á hverju ári heiðrar Landspítali starfsfólk sem hefur skarað fram úr og lagt sitt af mörkum til starfsemi spítalans svo eftir er tekið.

Fasteignaþjónusta Landspítala var heiðruð í flokknum Vinnustaðurinn okkar á ársfundi spítalans í vor.

Fasteignaþjónustan hefur umsjón með 12 þúsund rýmum spítalans sem ná yfir 165 þúsund fermetra á 22 stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnin geta verið allt frá því að skipta um blöndunartæki eða stormjárn, yfir í að endurnýja sjúkrastofu frá grunni.

Fasteignaþjónustan hefur unnið markvisst að því að veita klíníkinni þá allra bestu þjónustu sem völ er á og mæta með bros á vör og jákvæð í verkefni.

Úr tilnefningu: „Ég dáist að hópi iðnaðarmanna sem starfar á spítalanum, þeir eru fljótir að bregðast við beiðnum og leysa úr öllum verkefnum með bros á vör. Það er mikill fengur fyrir Landspítala að hafa svona öfluga iðnaðarmenn í sínum röðum.”Í myndbandinu er rætt við Jóhann Frey Jóhannsson, teymisstjóra fasteignaþjónustu Landspítala.

Heiðrað er í flokkum sem samsvara gildum spítalans: Umhyggja, fagmennska, öryggi og framþróun. Að auki er heiðrað í flokknum Vinnustaðurinn okkar þar sem heiðraðir eru traustir vinnufélagar sem gera vinnudaginn betri.

Fjölmargar tilnefningar bárust en það er ekki aðeins samstarfsfólk sem getur tilnefnt heldur einnig sjúklingar, aðstandendur og sjúklingasamtök.

Þeir einstaklingar sem voru heiðraðir í ár fengu verkið Á eftir listakonuna Ástu Fanneyju Sigurðardóttur.

Ásta Fann­ey er tal­in einn af fremstu gjörn­ingalista­mönn­um lands­ins. Hún hef­ur sýnt og flutt verk sín á söfn­um og hátíðum víða um heim og verður full­trúi Íslands á Fen­eyja­tvíær­ingn­um í mynd­list árið 2026 en tví­ær­ing­ur­inn er tal­inn einn mik­il­væg­asti vett­vang­ur sam­tíma­list­ar á heimsvísu.

Verkið Á er prentverk í ótakmörkuðu upplagi en hvert verk er þó einstakt þar sem Ásta stimplar árfarveginn á hvert verk fyrir sig. Þar sem áin endar á hverju blaði tekur hún við á því næsta og þannig flæðir hún áfram í gegnum verkin. Verkið á rætur sínar í gjörningi sem Ásta sýndi á samtímalistasafninu í Tókýó árið 2023.

https://player.vimeo.com/video/1097890554?badge=0&autopause=0&player%5Fid=0&app%5Fid=58479