Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Heiða Björk Gunnlaugsdóttir ráðin deildarstjóri á almennri endurhæfingardeild aldraðra

9. júní 2026

Heiða Björk Gunnlaugsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri á almennri endurhæfingardeild aldraðra á Landakoti.

Heiða er hjúkrunarfræðingur að mennt og með meistaragráðu í verkefnastjórnun.

Heiða hóf störf sem hjúkrunarfræðingur á smitsjúkdómadeild árið 1998 og hefur átt farsælan feril innan spítalans, m.a. sem hjúkrunarfræðingur og verkefnastjóri á bráðamóttöku, verkefnastjóri á sýkingavarnadeild og gæðastjóri á Landspítala. Heiða tók við sem deildarstjóri á almennri endurhæfingardeild aldraðara, L2 á Landakoti, í júní 2025 en hefur nú verið fastráðin í stöðuna.

​Heiða Björk hefur víðtæka reynslu af verkefnastjórnun og gæðastjórnun innan spítalans og tekið þátt í stefnumótunum, umbótaverkefnum og ýmsum verkefnahópum á Landspítala.

„Á Landakoti og á almennri endurhæfingardeild aldraðra starfar þverfaglegt teymi sem sinnir endurhæfingu aldraðra af alúð og fagmennsku. Tel ég að mitt hlutverk sem deildarstjóri sé að skapa gott og hvetjandi vinnuumhverfi sem styrkir þjónustu við skjólstæðinga okkar. Ég stefni að því að vera í góðum tengslum við aðra stjórnendur og stuðla að stöðlun á verklagi á milli starfseininga til að auka öryggi, skilvirkni og fagmennsku. Saman munum við halda áfram að veita framúrskarandi þjónustu til okkar skjólstæðinga og þannig taka þátt í að styðja við það öfluga starf sem Landspítali þjónar“.