Harpa Dís ráðin deildarstjóri geislameðferðardeildar
2. nóvember 2026
Harpa Dís Birgisdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri geislameðferðardeildar þar sem hún var áður aðstoðardeildarstjóri.

Harpa er geislafræðingur með B.Sc. próf í geislafræði frá Tækniháskóla Íslands (1993) og diplómu í opinberri stjórnsýslu fyrir stjórnendur í heilbrigðisþjónustu frá Háskóla Íslands (2013). Hún hefur ríflega 30 ára reynslu úr heilbrigðisþjónustu og hefur í 19 ár starfað við geislameðferð.
Harpa hefur yfirgripsmikla þekkingu á geislameðferð og hefur tekið virkan þátt í þeim miklu breytingum sem hafa átt sér stað á deildinni undanfarin ár. Hún mun bera ábyrgð á daglegum rekstri, flæði sjúklinga, verkefnum geislafræðinga og móttökuritara ásamt framkvæmd geislameðferðar.
Hún leggur áherslu á öryggi sjúklinga, góð samskipti og virka þátttöku starfsfólks í þróun þjónustunnar.
„Ég er spennt að fá að taka þátt í að móta framtíð geislameðferðar á Landspítala. Hér starfar góður hópur fólks sem vinnur að sama markmiði: að sjúklingar finni fyrir öryggi og fái bestu mögulegu þjónustu.“
