Hans Tómas ráðinn prófessor - yfirlæknir barnalækninga
4. ágúst 2026
Hans Tómas Björnsson hefur verið ráðinn prófessor - yfirlæknir barnalækninga.

Hans Tómas lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1995 og útskrifaðist úr læknadeild Háskóla Íslands 2001. Hann lauk doktorsprófi í mannerfðafræði árið 2007 frá Johns Hopkins-háskólanum í Baltimore en doktorsverkefni hans snerist um að þróa aðferðir til að mæla breytileika í utangenaerfðum hjá mönnum. Hann lauk svo sérfræðinámi í barnalækningum og klínískri erfðafræði frá sömu stofnun árið 2012. Hans Tómas gegndi starfi lektors við Johns Hopkins-háskólann frá 2012 og síðar dósents, hann hlaut svo stöðu prófessors þar í mars á þessu ári. Þá hefur Hans Tómas verið yfirlæknir hjá erfða- og sameindalæknisfræðideild Landspítala og prófessor í færsluvísindum og barnalækningum við Háskóla Íslands síðan í janúar 2018.
Sem prófessor - yfirlæknir barnalækninga mun Hans Tómas leiða uppbyggingu fræðastarfs, kennslu og rannsókna á sviðinu. Markmið starfsins er að efla menntun heilbrigðisstarfsfólks, styrkja rannsóknir og stuðla að öflugu samstarfi Landspítala og Háskóla Íslands á sviði barnalækninga.
„Það er mér mikill heiður að taka við þessu hlutverki. Ég hlakka til að vinna með einstaklega öflugu starfsfólki Barnaspítalans að því að halda áfram að byggja upp öflugt fræðasamfélag í barnalækningum. Slíkt fræðasamfélag er forsenda nýliðunar, framþróunar og bestu mögulegu þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra.“
