Hans Tómas fær prófessorsstöðu við Johns Hopkins háskóla
9. mars 2026
Hans Tómas Björnsson, yfirlæknir við erfða- og sameindalæknisfræðideild Landspítala og prófessor í færsluvísindum og barnalækningum við Háskóla Íslands, hefur fengið stöðu prófessors við Johns Hopkins-háskóla í Baltimore í Bandaríkjunum.

Hans Tómas hefur verið í hlutastarfi við skólann frá 2012, fyrst sem lektor og nú síðast sem dósent, en sjaldgæft er að einhverjum, sem ekki er í fullu starfi, sé veittur framgangur í stöðu prófessors. Sem hluti af því ferli eru send bréf til óháðra sérfræðinga í faginu til að tryggja að viðkomandi sé leiðandi sérfræðingur á sínu sviði á alþjóðavísu (e. international authority).
„Þetta er mikill heiður og stórt skref að komast á þetta efsta stig,“ segir Hans Tómas. Starfið fyrir Johns Hopkins hefur aðallega falist í rannsóknum og hefur honum tekist að skapa gott tengslanet vestanhafs. Að hans sögn hefur það reynst afar gagnlegt hvað varðar vinnu hans með sjaldgæfa sjúkdóma og að auki hefur það gert honum kleift að koma Íslendingum að í erlendar lyfjaprófanir eða viðtöl hjá sérfræðingum þar úti.
