Hanna ráðin deildarstjóri á geislaeðlisfræðideild
3. nóvember 2026
Hanna Björg Henrysdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri á geislaeðlisfræðideild.

Hanna lauk meistaragráðu í læknisfræðilegri eðlisfræði frá VUmc í Amsterdam árið 2011 og meistaragráðu í heilsuhagfræði frá Háskóla Íslands árið 2016. Hún hefur 19 ára reynslu af geislameðferð, þar af sjö ár sem stjórnandi.
Hún leiðir teymi læknisfræðilegra eðlisfræðinga og dosimetrista og ber faglega ábyrgð á eðlisfræðilegum, tæknilegum og geislavarnatengdum þáttum geislameðferðar, rekstri tækjabúnaðar og hugbúnaðar ásamt gæðaeftirliti með lækningatækjum deildarinnar. Hanna ber jafnframt ábyrgð á gæðum og þróun geislaplönunar, þar sem ákveðið er hvernig geislunin beinist sem best að æxli en hlífir heilbrigðum vefjum. Í starfi sínu leggur Hanna áherslu á öryggi sjúklinga, faglegan metnað til umbóta og öflugt gæðastarf.
„Ég hlakka til að leiða áfram það góða starf sem unnið er í teyminu og að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu geislameðferðar á Íslandi. Hér starfar öflugur hópur og ég hlakka til að áframhaldandi samstarfs með öllum þeim sem koma að geislameðferð. Með skýrari faglegri ábyrgð í nýju stjórnskipulagi styrkjum við umgjörð um öryggi og gæði geislameðferðar.“
