Gulur dagur á Landspítala
10. september 2026
Guli dagurinn er í dag, á alþjóðlegum forvarnadegi sjálfsvíga.

Á gula deginum er fólk hvatt til að klæðast gulu og skreyta með gulu og sýna þannig stuðning við geðheilbrigði og sjálfsvígsforvarnir. Gulur er litur sjálfsvígsforvarna og táknar von, hlýju og stuðning. Markmið dagsins er að auka meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna með kærleika, aðgát og umhyggju að leiðarljósi.
Á legudeild geðrofssjúkdóma, bráðalegudeild geð- og fíknisjúkdóma og á barna- og unglingageðdeild var guli liturinn allsráðandi, hvort sem um var að ræða peysur, höfuðföt, klúta eða kökur. Þá lét starfsfólk Landspítala sem klæðast þarf sérstökum vinnufatnaði ekki sitt eftir liggja og bar gula límmiða með semikommu til að sýna samstöðu. Semikomman er kennimerkið fyrir gulan september og vísar til framhalds; seiglu og vonar.













