Gjörbreytt heimsóknaraðstaða á Landakoti
17. apríl 2026
Kvennadeild Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands (KRRKÍ) var í gær boðið í heimsókn á Landakot til að þakka fyrir 12 milljóna króna styrk sem deildin veitti nýverið.

Styrkurinn var nýttur í umfangsmiklar endurbætur á stigapöllunum, þar sem hljóðvist var bætt, rýmið málað og húsgögn endurnýjuð.
Framkvæmdirnar hafa gjörbreytt heimsóknaraðstöðunni á Landakoti og hafa aðstandendur lýst mikilli ánægju með þær. Umhverfið er orðið mun hlýlegra og hljóðvistin margfalt betri sem hefur haft í för með sér að stigapallarnir iða nú af lífi. Áhrifin hafa þannig verið mjög jákvæð fyrir sjúklinga, aðstandendur, nema og starfsfólk.°



