Geirný Ómarsdóttir ráðin deildarstjóri á göngudeild lyflækninga F
11. febrúar 2026
Geirný útskrifaðist úr hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 2010 og lauk viðbótardiplómanámi í hjúkrunarstjórnun frá sama skóla árið 2018.

Geirný hefur starfað á Landspítala frá 2007 og á göngudeild lyflækninga frá 2018 sem aðstoðardeildarstjóri og síðan sem settur deildarstjóri.
Miklar breytingar hafa orðið á göngudeild lyflækninga síðustu ár og hefur Geirný tekið þátt í að leiða þær breytingar, t.d. í fjarþjónustu við sjúklinga, uppbyggingu teymisvinnu og í stafrænni þróun.
„Ég hlakka til að leiða áfram öfluga starfsemi göngudeildarinnar og þróa þjónustuna til sjúklinga enn frekar með stafrænar lausnir og teymisvinnu að leiðarljósi.“
