Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Geðteymi fangelsa flyst til Landspítala

25. júní 2026

Frá og með 1. maí sl. færðist rekstur geðteymis fangelsa frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til Landspítala og er nú hluti af réttar- og öryggisgeðþjónustu Landspítala (RÖG).

Geðteymi fangelsa.

Flutningurinn markar mikilvægt skref í áframhaldandi þróun sérhæfðrar geðheilbrigðisþjónustu innan fangelsa og er ætlað að styrkja samfellu, samþættingu og sérhæfingu þjónustunnar. Með breytingunni skapast aukin tækifæri til nánara samstarfs milli geðþjónustu Landspítala og geðteymis fangelsa með það að markmiði að bæta þjónustu við einstaklinga í viðkvæmri stöðu með flókinn geðrænan vanda og aukna áhættuhegðun.

Með flutningi teymisins til Landspítala verður geðteymi fangelsa hluti af heildstæðri þjónustu innan RÖG sem spannar sérhæfðar legudeildir, samfélagsmiðaða ferliþjónustu og þjónustu innan fangelsa. Með því skapast betri forsendur fyrir samræmdu verklagi, aukinni þverfaglegri samvinnu og styrkari tengingu milli meðferðar innan og utan stofnana.

Starfsfólk geðteymis fangelsa hefur um árabil byggt upp mikilvæga sérþekkingu á geðheilbrigðisþjónustu innan refsivörslukerfisins og er mikill fengur fyrir Landspítala að fá teymið inn í starfsemi spítalans. Jafnframt er lögð áhersla á að breytingarnar verði unnar í góðu samstarfi við Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Fangelsismálastofnun og aðra samstarfsaðila. Markmið breytinganna er að efla sérhæfða geðheilbrigðisþjónustu fyrir einstaklinga í fangelsum, tryggja samfellu í meðferð og styrkja samstarf milli geðheilbrigðisþjónustu Landspítala og refsivörslukerfisins.