Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Gáfu kvenlækningadeild stóla og vökvastatíf

13. apríl 2026

Kvenlækningadeild Landspítala fékk á dögunum veglega gjöf frá kvennadeild Reykjavíkurdeildar Rauða Kross Íslands (KRRKÍ)

Um var að ræða 38 stóla fyrir skjólstæðinga og aðstandendur og átta vökvastatíf, að andvirði ríflega þriggja milljóna króna.

Á myndinni eru Laufey Kristjónsdóttir, varaformaður KRRKÍ, aðstoðardeildarstjórarnir Anna Björnsdóttir og Steinunn Arna Jóhannesdóttir, Sigrún Jónsdóttir, gjaldkeri KRRKÍ, Halldóra Ásgeirsdóttir, formaður KRRKÍ, og Hrund Magnúsdóttir, deildarstjóri.