Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Fyrstu sjúklingarnir komnir á útskriftarmiðstöðina

18. september 2026

Útskriftarmiðstöð Landspítala tók til starfa á C3 í Fossvogi þann 1. september sl. Starfsemin er komin vel af stað og hafa nú 32 sjúklingar nýtt þjónustu hennar.

Í upphafi var ákveðið að bjóða sjúklingum sem útskrifast af bráðalegudeildum lyflækninga í Fossvogi að dvelja á útskriftarmiðstöðinni. Legudeildirnar hafa sýnt þjónustunni mikinn áhuga og beiðnir tóku að berast strax við opnun.

Frá fyrstu dögum hefur verið gott samstarf milli starfsfólks legudeildanna og útskriftarmiðstöðvarinnar. Saman hefur starfsfólkið fundið sjúklinga sem henta fyrir þjónustuna og unnið að því að koma nýju verklagi vel af stað. Þeir sjúklingar sem hafa nýtt þjónustuna fyrstu dagana hafa verið ánægðir með dvölina og þjónustuna sem þeir hafa fengið.

Rólegt umhverfi í lok sjúkrahúsdvalar

Útskriftarmiðstöðin er tíu stóla dagdeild fyrir sjúklinga sem hafa lokið meðferð á legudeild og bíða eftir heimferð eða flutningi á annað þjónustustig. Þar geta þeir lokið sjúkrahúsdvölinni í rólegu og þægilegu umhverfi.

Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar taka á móti sjúklingunum og geta meðal annars lokið lyfjagjöfum, nestun lyfja, einföldum sáraskiptum og útskriftarfræðslu. Legudeildirnar þurfa því ekki að hafa lokið öllum hjúkrunarverkum áður en sjúklingur flyst á útskriftarmiðstöðina, svo lengi sem um er að ræða verkefni sem starfsfólk miðstöðvarinnar getur tekið við.

Farið er yfir útskriftina með sjúklingnum og tryggt eins og kostur er að hann hafi fengið nauðsynlegar upplýsingar áður en hann fer. Sjúklingum standa einnig til boða veitingar og einföld afþreying meðan þeir bíða.

Markmið útskriftarmiðstöðvarinnar er að styðja legudeildirnar í útskriftarferlinu og stuðla að góðri og öruggri upplifun sjúklinga við útskrift. Þegar sjúklingur flyst á útskriftarmiðstöðina losnar jafnframt legurými fyrr fyrir nýjan sjúkling sem þarf á innlögn að halda.

Mikilvægt að undirbúa sjúklinga og aðstandendur

Útskriftarmiðstöðin hvetur starfsfólk legudeilda til að ræða mögulegan flutning á útskriftarmiðstöðina við sjúkling um leið og undirbúningur útskriftar hefst. Þannig veit sjúklingurinn við hverju má búast og flutningurinn kemur honum ekki á óvart.

Einnig er mikilvægt að afhenda sjúklingi fræðslubækling um útskriftarmiðstöðina og upplýsa aðstandendur um að sjúklingurinn geti lokið sjúkrahúsdvölinni þar. Aðstandendur þurfa að vita hvar miðstöðin er staðsett og hvert þeir eiga að koma þegar þeir sækja sjúklinginn. Góðar upplýsingar og jákvæð kynning geta dregið úr óvissu og gert flutninginn ánægjulegri fyrir bæði sjúklinga og aðstandendur.

Útskriftir ræddar fyrr

Strax fyrstu dagana hefur orðið vart við jákvæð áhrif á undirbúning útskrifta. Deildir virðast ræða útskriftir fyrr og ákveða í auknum mæli daginn áður hvaða sjúklingar geti farið á útskriftarmiðstöðina. Það er ánægjuleg þróun sem auðveldar bæði legudeildunum og útskriftarmiðstöðinni að skipuleggja daginn og stuðlar að markvissara útskriftarferli.

Fyrstu dagarnir lofa góðu og sýna hvað hægt er að gera með góðri samvinnu. Áfram verður unnið náið með legudeildunum að því að þróa þjónustuna, bæta flæði og stuðla að góðri og öruggri upplifun sjúklinga við útskrift.

Allt starfsfólk og allir sjúklingar Landspítala eru hjartanlega velkomin að kíkja við á útskriftarmiðstöðinni á C3, hitta starfsfólkið og skoða aðstöðuna.