Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Funduðu um krabbameinsforvarnir

31. mars 2026

Nýverið var haldinn vinnufundur í samstarfsverkefni EUnetCCC um krabbameinsforvarnir á Landspítala og komu um 25 sérfræðingar í forvörnum krabbameina frá Evrópu á fundinn.

Búist er við mikilli fjölgun krabbameinstilvika á Íslandi næstu tuttugu árin. Á Íslandi greinast árlega um 2.000 manns með krabbamein en gangi spár eftir má búast við því að árið 2045 verði greiningarnar orðnar ríflega 3.500 á ári. Sett hefur verið á fót krabbameinsmiðstöð á Landspítala og er unnið að því að fá alþjóðlega vottun til að tryggja að ströngustu gæðakröfur séu uppfylltar.



Í myndbandinu er rætt við Sigurdísi Haraldsdóttur, yfirlækni og forstöðumann fræðasviðs krabbameinslækninga á Landspítala og prófessor við Háskóla Íslands, og Béatrice Fervers, dósent í krabbameinslækningum og sérfræðing í krabbameinsforvörnum við Centre Léon Bérard spítala í Lyon, Frakklandi.