Framúrskarandi námsumhverfi á taugaendurhæfingardeild
22. október 2026
Taugaendurhæfingardeild á Landakoti (K2) hefur fengið viðurkenningu fyrir framúrskarandi námsumhverfi hjúkrunar- og sjúkraliðanema.

„Hérna á K2 þá tökum við á móti bæði sjúkraliðanemum og hjúkrunarnemum, sem okkur finnst voðalega gaman. Við reynum alltaf að undirbúa okkur vel þannig að við getum tekið vel á móti nemunum, setjum okkur inn í námslýsinguna hjá þeim, hvað þau eiga að læra og svo reynum við að finna námstækifæri við hæfi fyrir hvern og einn,“ segir Gunnþóra Sveinsdóttir, aðstoðardeildarstjóri á taugaendurhæfingardeildinni.
Í meðfylgjandi myndbandi er, auk Gunnþóru, rætt við Ólaf G. Skúlason, framkvæmdastjóra hjúkrunar á Landspítala, og Jóhönnu Friðriksdóttur, deildarstjóra taugaendurhæfingardeildar.
