Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Framleiða á annað hundrað lyfjablöndur daglega

23. júní 2026

Í lyfjablöndun Landspítala fer fram sérhæfð og mikilvæg starfsemi sem styður við lyfjameðferðir fjölda sjúklinga.

Í lyfjablönduninni er unnið samkvæmt ítarlegum gæðastöðlum og verklagi sem tryggja öryggi sjúklinga og starfsfólks. Starfsemin er hluti af þeirri ósýnilegu vinnu sem fer fram á bak við tjöldin á spítalanum, en hefur mikla þýðingu fyrir daglega þjónustu og meðferðir.

Í lyfjablöndun starfar samheldinn 20 manna hópur lyfjafræðinga, lyfjatækna og sérhæfðs starfsfólks í fjölbreyttum störfum. Þar eru blönduð lyf sem gefin eru í æð, meðal annars krabbameinslyf, sýklalyf, verkjalyf og næring. Vinnan fer fram í sérútbúnum hreinrýmum þar sem gæðastöðlum um smitgát og öryggi er fylgt, en sambærileg aðstaða til blöndunar er ekki til staðar á öðrum deildum Landspítala. Miklar kröfur eru gerðar til þjálfunar starfsfólks og hæfni þess, þar sem áhersla er lögð á nákvæmni, hreinlæti og rekjanleika.

Daglega eru framleiddar vel á annað hundrað lyfjablöndur fyrir bæði göngudeildir og legudeildir Landspítala og styðja við meðferðir sjúklinga með fjölbreytta sjúkdóma. Starfsemin hefur vaxið jafnt og þétt á síðustu árum og hefur umfang lyfjablöndunar aukist ár frá ári. Árið 2025 voru framleiddar rúmlega 44 þúsund lyfjablöndur. Þess má geta að nálægt 90% þeirra sjúklinga sem þurfa krabbameinslyf í æð á Íslandi fá lyf sem blönduð eru í lyfjablöndun.

Á næstu árum mun starfsemin halda áfram að þróast samhliða innleiðingu nýrra lyfja og meðferða, en því fylgir aukið umfang í lyfjablöndun. Tilkoma nýs meðferðarkjarna Landspítala mun jafnframt skapa ný tækifæri fyrir áframhaldandi þróun starfseminnar.