Framkvæmdum við bráðamatsdeild miðar vel
20. mars 2026
Framkvæmdir við viðbyggingu við bráðamóttökuna í Fossvogi, þar sem verður að finna bráðamatsdeild, eru í fullum gangi og miðar þeim vel.

Unnið er að uppsetningu eininga og þegar ytri skel hússins er kláruð verður hafist handa innanhúss. Bráðamatsdeildin verður viðbót við bráðaþjónustu Landspítala og er ætlað að dreifa álagi þannig að betur verði hægt að ráða við vaxandi verkefni.




