Framkvæmdastjórn NUHA ræddi framtíð norrænnar heilbrigðisþjónustu
30. janúar 2026
Framkvæmdastjórn og stýrinefnd Norræna háskólasjúkrahússbandalagsins (Nordic University Hospital Alliance, NUHA) komu saman í Reykjavík dagana 14.–15. janúar 2026 til að ræða stefnumótandi þróun, nýjar áherslur í heilbrigðismálum og framtíðarsamstarf á Norðurlöndunum.

Fundurinn var haldinn á Landspítala og sóttu hann stjórnendur frá Kaupmannahöfn, Helsinki, Osló, Reykjavík og Stokkhólmi.
Efnistök fundarins voru víðtæk, líkt og staða starfshópa, stjórnskipulag, rannsóknir og nýsköpun, sem og mat á mögulegum nýjum áherslusviðum. Þátttakendur fengu einnig leiðsögn um nýja meðferðarkjarnann þar sem kynntar voru nýjungar í þjónustu við sjúklinga og hönnun sjúkrahúsa.
„NUHA er einstakur vettvangur fyrir norræn sjúkrahús til að vinna saman, læra hvert af öðru og takast sameiginlega á við stærstu áskoranir heilbrigðiskerfisins. Þessi fundur gerir okkur kleift að samræma áherslur, kanna ný svið og tryggja að verkefni okkar skili raunverulegum ávinningi fyrir sjúklinga og heilbrigðiskerfin,“ segir Bjørn Atle Bjørnbeth, forstjóri Háskólasjúkrahússins í Osló.
Áhersla lögð á ný og vaxandi svið
NUHA er með nokkur lykiláherslusvið sem eru mikilvæg fyrir framtíðina. Á fundinum var sérstök áhersla lögð á viðbúnað í krísum og hvernig háskólasjúkrahús geta starfað saman þvert á landamæri. Skoðað verður að vinna nánar að nýjum og vaxandi sviðum.
„Með því að sameina þekkingu, samræma aðferðir og deila bestu starfsvenjum getur NUHA stuðlað að nýsköpun og bætt árangur sjúklinga á Norðurlöndunum, “ segir Matti Bergendahl, forstjóri Háskólasjúkrahússins í Helsinki.
Stjórnskipulag og samstarf
Á fundinum var einnig lögð áhersla á stjórnarhætti og var rætt um hvernig mætti bæta samhæfingu starfshópa, skýra hlutverk leiðtoga og gera klínískum verkefnum kleift að þróast hraðar án þess að kasta ábyrgð fyrir róða. Framkvæmdastjórnin skoðaði tillögur um svokallaðan „virkjandi stuðning“ (enabling force) til að auka samræmi í rekstri og hraða ákvarðanatöku innan NUHA.
Útvíkkun NUHA og næstu skref
Að lokum var fjallað um framtíðarvöxt NUHA. Lögð verður lokahönd á tilraunaverkefni og ný áherslusvið á næstu mánuðum.
„Sem stjórnendur stórra háskólasjúkrahúsa er lykilatriði að við sköpum umgjörð sem styður við nýsköpun án þess að missa sjónar á þjónustu við sjúklinga. Með NUHA verður til vettvangur fyrir samvinnu sem styrkir ekki aðeins sjúkrahúsin okkar heldur allt norræna heilbrigðiskerfið,“ segir Rasmus Møgelvang, forstjóri Ríkisspítalans í Danmörku.
Horft til framtíðar: Tækifæri og samstarf
Fundurinn í Reykjavík lagði grunninn að framtíðarverkefnum og -samstarfi. Niðurstöður hans verða nýttar til að móta dagskrá næsta NUHA-leiðtogafundar í Ósló í maí 2026, þar á meðal uppfærslur á nýjum áherslusviðum og stjórnskipulagi.
„Það hefur verið ánægjulegt að hýsa NUHA hér í Reykjavík. Umræður og samstarf síðustu tveggja daga hafa sýnt styrk norrænnar samvinnu og sameiginlega skuldbindingu okkar við að efla heilbrigðisþjónustu fyrir alla,“ segir Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala.
