Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Fósturgreiningardeild flytur aftur á Hringbraut

10. september 2026

Fósturgreiningardeild kvenna- og barnaþjónustu Landspítala flytur aftur í kvennadeildarhúsið við Hringbraut fimmtudaginn 17. september nk. og verður til húsa á 2. hæð í B-álmu.

Deildin flutti starfsemi sína tímabundið í Skógarhlíð í desember 2021 vegna umfangsmikilla viðgerða og endurbóta á útveggjum og húsnæði B-álmu kvennadeildarinnar. Að framkvæmdum loknum sameinast þjónustan loks á nýjum og endurbættum stað. Með flutningnum verður meðgönguvernd, fósturgreining og bráðaþjónusta kvenna- og barnaþjónustu aftur undir sama þaki, sem tryggir betra flæði, nánara samstarf fagfólks og enn heildstæðari þjónustu við skjólstæðinga.

Á fósturgreiningardeild er veitt sérhæfð þjónusta, svo sem: 

  • 11–14 vikna fósturskimun 

  • 20 vikna fósturskimun 

  • Vaxtar- og flæðismælingar 

  • Legvatns- og fylgjuvefssýnatökur 

Starfsfólk deildarinnar hlakkar til að taka á móti verðandi foreldrum og fjölskyldum í endurbættu húsnæði við Hringbraut.