Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Fossvogsfléttunni formlega lokið

7. júlí 2026

Frá því í október 2024 hefur verið unnið að verkefninu Fossvogsfléttan. Hugmyndin um að sameina tvo ganga í eina deild er ekki ný af nálinni en það var ekki fyrr en haustið 2024 sem farið var að skoða hana af fullri alvöru.

Hugmyndin var áhættugreind og í kjölfarið lögð fyrir húsnæðisnefnd og síðar framkvæmdastjórn. Verkefnastjóri var fenginn að verkefninu, sem reyndist einn af lykilþáttunum í því hversu vel framkvæmdin gekk. Í framhaldinu var verkefnið kynnt fyrir stjórnendum á viðkomandi deildum og í júní 2025 var hugmyndin kynnt fyrir öllu starfsfólki viðkomandi deilda. Allir fengu sömu kynningu á sama tíma og viðbrögðin voru í flestum tilvikum jákvæð.

Nokkrar stórar húsnæðisbreytingar

Mikil vinna fór af stað hjá framkvæmdadeild við gerð teikninga og undirbúning þeirra rýma sem þurfti að breyta. Nokkrar stórar húsnæðisbreytingar fylgdu verkefninu. Útbúa þurfti nýtt brunabað á B6 og tók langan tíma að finna hentugt rými fyrir það áður en endanleg lausn fannst sem allir gátu sætt sig við. Á fimmtu hæð var settur upp glerveggur og hurð í skálanum til að sameina gangana. Sú breyting var ein af forsendum þess að verkefnið gæti farið af stað. Við þetta þrengdist rýmið í skála og verður það áskorun að vinna með minna rými.

Einnig þurfti að gera breytingar á deildarstjóraherbergjaskipan þar sem deildarstjóraherbergi skurðstofugangs hefði annars endað inni á nýrri deild. Á nýrri deild AB5 var útbúin ný kaffistofa og lyfjaherbergi í B-álmu var fært í stærra rými. Dagdeildin, sem áður var á A5, flutti niður á A4. Þar verður gamla brunabaðinu breytt í sjúklingarými og mun dagdeildin geta tekið á móti fleiri sjúklingum eftir þá breytingu.

Haldnar voru þrjár vinnustofur með starfsfólki B5, B6 og A4. Þær voru vel sóttar og starfsfólk fékk þar tækifæri til að koma sínum hugmyndum og áhyggjum á framfæri. Margar góðar hugmyndir komu fram sem voru nýttar áfram.

Þaulskipulagðir flutningar

Lengi vel var stefnt að flutningum í apríl en eftir langan undirbúning var ákveðið að flytja um helgi og hin langa helgi 1.-3. maí varð fyrir valinu. Starfsfólk dagdeildar kom inn 1. maí, pakkaði niður og í kjölfarið var deildin þrifin. Á laugardeginum var stóri flutningsdagurinn. Hópur vaskra starfsmanna kom aukalega til vinnu þann dag til að aðstoða. Búið var að skipuleggja nákvæmlega hvernig best væri að koma öllum sjúklingum á sinn stað og klukkan 12 á hádegi var búið að flytja alla sjúklinga af A4 upp á AB5 og B6 eftir því hvaða sérgreinum þeir tilheyrðu. Eftir það var pakkað niður á A4 og deildin hreingerð. Á sunnudeginum kom dagdeildin aftur í hús og pakkaði upp á nýrri deild á A4.

Einfaldari og markvissari starfsemi með nýju skipulagi

Frá upphafi var tilgangur breytinganna skýr. Breytingarnar voru gerðar vegna skorts á legurýmum og til að hafa alla sjúklinga á réttum stað. Allt of oft hefur þurft að fresta aðgerðum og sjúklingar bæklunarskurðlækninga, einnar stærstu sérgreinar spítalans, lágu áður á þremur legudeildum með tilheyrandi skorti á yfirsýn, ábyrgð og eignarhaldi.

Með nýju skipulagi verður starfsemin einfaldari og markvissari. Þrjár deildir sameinuðust í tvær. Á B6, sem heitir eftir breytingarnar skurðlækningadeild, eru nú fjórar sérgreinar: heila- og taugaskurðlækningar, lýtalækningar, háls-, nef- og eyrnalækningar og æðaskurðlækningar, þar verður pláss fyrir 23 sjúklinga. Á AB5 eru bæklunar- og öldrunarbæklunarsjúklingar. Sú deild verður 44 rúma deild þegar búið verður að fullmanna deildina. Hágæsla fyrir skurðsjúklinga verður áfram á B6 og vöktunarrými fyrir fjöláverkasjúklinga bætist við á AB5.

Dagdeildin stendur einnig frammi fyrir breytingum. Þótt flutningurinn hafi ekki verið drifinn áfram af þörfum dagdeildarinnar sjálfrar var deildin lykilþáttur í því að verkefnið gæti orðið að veruleika. Flutningurinn af A5 niður á A4 kallaði á aðlögun starfsfólks og breytingar á starfsaðstöðu en á móti skapast aukin tækifæri til uppbyggingar og þróunar þjónustu við dagdeildarsjúklinga.

Mikil og góð samvinna

Nú þegar flutningunum er lokið og nýjar deildir hafa tekið til starfa mætti segja að meðgöngu og fæðingu Fossvogsfléttunnar sé lokið en þá tekur við næsti kafli, uppeldið. Framundan eru fjölmargar áskoranir. Það tekur tíma að móta nýja menningu og samhæfa starfsemi á deildum sem hafa sameinast eða stækkað hratt og eiga enn eftir að stækka. Þá verður áfram mikilvægt að hlúa að sérhæfingu í hjúkrun svo hún tapist ekki þegar margar sérgreinar eru undir sama þaki.

Það sem stendur kannski mest upp úr þegar litið er til baka er hvað margir komu að verkefninu og hvað samvinnan var mikil og góð. Það var varla sú stoðeining á spítalanum sem tók ekki þátt á einhverjum tímapunkti og verkefnið hefði aldrei orðið að veruleika nema vegna alls þess fólks sem lagði hönd á plóg.