Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Fossvogsfléttan - Dag- og legudeildir bæklunarlækninga sameinast

13. janúar 2026

Í vor verða gerðar breytingar á skipulagi dag- og legudeilda í Fossvogi sem miða að því að bæta þjónustu við sjúklinga og skapa betra vinnuumhverfi fyrir starfsfólk.

Undirbúa þarf breytingarnar vandlega svo vel takist til en í einföldu máli snúast þær um að þrjár deildir verði sameinaðar í tvær. Ný deild með 44 rúmum, AB5, mun þjónusta alla bæklunarsjúklinga auk þess sem þar bætist við vöktunarrými fyrir fjöláverkasjúklinga. Breytingarnar snerta fyrst og fremst skurðlækningasvið en áhrifin munu gagnast allri starfsemi spítalans.

Í meðfylgjandi myndbandi eru breytingarnar útskýrðar nánar og rætt við Dagrúnu Ásu Ólafsdóttur, deildarstjóra á bæklunarskurðdeild Landspítala, og Hörpu Eik Óskarsdóttur, hjúkrunarfræðing á sömu deild.