Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Fögnuðu flutningum í Fossvogi

14. maí 2026

Umfangsmiklir flutningar áttu sér stað á Landspítala í Fossvogi í upphafi mánaðar þar sem verið var að sameina og hagræða starfsemi deilda á þremur hæðum.

Flutningarnir höfðu verið í undirbúningi í ríflega hálft annað ár enda í mörg horn að líta. Fyrir skömmu var því fagnað hversu vel flutningarnir tókust og klippt var á borða til að opna formlega nýjar deildir.

Viðmælendur í myndbandinu eru Dagrún Ása Ólafsdóttir, deildarstjóri bæklunarskurðdeildar (AB5), Þórir Svavar Sigmundsson, framkvæmdastjóri skurðlækninga-, skurðstofu- og gjörgæsluþjónustu, Magney Ósk Bragadóttir, deildarstjóri skurðlækningadeildar (B6), Steinunn Arna Þorsteinsdóttir, deildarstjóri skurðlækningadeildar (B6), Edda Dröfn Daníelsdóttir, deildarstjóri dagdeildar skurðlækninga (A4), og María Björg Kristjánsdóttir, miðlægur verkefnastjóri. ​