Fögnuðu 50 ára afmæli Vökudeildar
9. febrúar 2026
Vökudeild Landspítala varð 50 ára þann 2. febrúar sl. Deildin sinnir öllum nýfæddum börnum sem þurfa sérhæft eftirlit og meðferð eftir fæðingu og börnum upp að þriggja mánaða aldri sem þurfa gjörgæslumeðferð.

Börnin leggjast yfirleitt inn á deildina á fyrstu mínútum eða klukkustundum lífs síns. Fyrirburar, börn sem fæðast fyrir 37. viku meðgöngu, eru tæpur helmingur skjólstæðingahóps Vökudeildar og eru yngstu fyrirburarnir fæddir allt frá 23 vikna meðgöngu og vega frá 500 grömmum.
Í meðfylgjandi myndbandi er rætt við Sigríði Maríu Atladóttur, deildarstjóra Vökudeildar, Þórð Þórkelsson, fyrrverandi yfirlækni Vökudeildar, og Ragnheiði Sigurðardóttur, einn af stofnendum Vökudeildar og fyrsta hjúkrunardeildarstjórann, ljósmóður og hjúkrunarfræðing.
Í tilefni af hálfrar aldar afmælinu fór fram málþing í Hringsal síðastliðinn föstudag.
Þar hélt Þórður Þórkelsson, fyrrverandi yfirlæknir Vökudeildar, erindi um þróun og árangur meðferðar á veikum nýburum hér á landi sl. 50 ár, auk þess sem dr. Rakel Björg Jónsdóttir og Elín Ögmundsdóttir, sérfræðingar í hjúkrun, fjölluðu um hjúkrun nýbura á Íslandi í fortíð, nútíð og framtíð. Lilja Ægisdóttir, formaður Hringsins, flutti kveðju frá Hringnum og Diljá Ámundadóttir Zoega sagði söguna hennar Lúnu.

Þórður Þ. Þórðarson, yfirlæknir á Vökudeild, var fundarstjóri og sagði frá fyrstu árum deildarinnar.

Þórður Þórkelsson, fyrrverandi yfirlæknir á Vökudeild.


Dr. Rakel Björg Jónsdóttir og Elín Ögmundsdóttir, sérfræðingar í hjúkrun.

