Fjölbreytt forgangsverkefni
30. apríl 2026
Forstjórapistill Runólfs Pálssonar úr nýjasta tölublaði Spítalapúlsins.

Á liðnum vikum hefur umræða sem tengist Landspítala beinst að rekstrarhagræðingu sem stjórnendur spítalans standa frammi fyrir. Líkt og ég hef áður fjallað um á þessum vettvangi eru fjárveitingar til spítalans í ár langt frá því að teljast ásættanlegar og því var nauðsynlegt að ráðast í umfangsmikla vinnu við að greina leiðir til að mæta yfirvofandi rekstrarhalla. Samhliða því stefnum við að því að sækja fram á ýmsum sviðum því líkt og önnur háskólasjúkrahús verður Landspítali að þróast og eflast með þarfir samfélagsins að leiðarljósi. Það er engan veginn ákjósanleg staða fyrir stjórnendur stofnunarinnar að neyðast til að draga saman seglin þegar verkefni sem óhjákvæmilegt er að sinna aukast stöðugt og framþróun í heilbrigðisvísindum er örari en nokkru sinni.
Forgangsverkefni Landspítala á árinu 2026 eru fjölbreytt enda er hlutverk spítalans víðtækt á sviði klínískrar þjónustu, menntunar og vísindastarfsemi og þurfa allir þessir mikilvægu þættir að fá viðunandi rými innan starfseminnar. Vegna þungrar stöðu bráðastarfseminnar hafa verkefni tengd henni verið áberandi á undanförnum árum og verða það áfram. Endurskipulagning bráðaþjónustunnar er forgangsverkefni og samhliða því verður leitast við að útvíkka þjónustu spítalans með þróun heimaspítala ásamt aukinni fjarþjónustu. Þótt enn séu nokkur ár þar til flutt verður í meðferðarkjarnann og rannsóknahúsið við Hringbraut er undirbúningur fyrir flutninginn vaxandi verkefni sem mun krefjast æ meiri tíma starfsfólks. Í því samhengi skiptir samþætting þjónustuferla og stöðlun verklags miklu en slík verkefni hafa verið í forgrunni síðan ég tók við starfi forstjóra fyrir rúmum fjórum árum. Þá verður sem fyrr lögð áhersla á gagnadrifna nálgun sem grundvöll skilvirkrar og vandaðrar ákvarðanatöku. Loks er stjórnskipulag stofnunarinnar í stöðugri þróun og er fyrirkomulag stafrænna verkefna í kjölfar tilkomu Stafrænnar heilsu nærtækt dæmi. Búast má við að þær hagræðingaraðgerðir sem framundan eru geti haft áhrif á skipulag innan ákveðinna eininga en umfram allt verður framlínustörfum innan klínísku þjónustunnar hlíft.
Menntunar- og vísindahlutverk Landspítala hafa að mínu viti ekki fengið viðeigandi athygli stjórnvalda en í ár eigum við von á að sérnám lækna fái loks þá fjárveitingu sem nauðsynleg er til að við getum haldið áfram uppbyggingu því sviði með hliðsjón af alþjóðleg viðmiðum. Að auki vonast ég til þess að aukið samstarf og samlegð við Háskóla Íslands muni styrkja vísindastarfsemi spítalans. Fyrsta skrefið í þeirri viðleitni var nýafstaðin sameiginleg vísindaráðstefna Landspítala og Heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands undir yfirskriftinni Vísindi á vordögum. Skemmst er frá því að segja að ráðstefnan heppnaðist vel og lýstu þátttakendur mikilli ánægju með hvernig til tókst. Sem stendur er unnið að því að setja á laggirnar sameiginlega heilbrigðisvísindastofnun stofnanna tveggja, Háskóla Íslands og Landspítala. Engum blöðum er um það að fletta að menntun og vísindi eru lykilþættir í starfsemi spítalans og skapa forsendur fyrir stöðugri framþróun og þjónustu í hæsta gæðaflokki.
---
Spítalapúlsinn má lesa í heild sinni hér.
