Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Fjölbreytt erindi á geðdeginum

20. maí 2026

Geðdagurinn, ráðstefna á vegum geðþjónustu Landspítala, var haldinn fyrir skömmu.

Á geðdeginum voru kynntar rannsóknir og verkefni tengd geðþjónustu á Íslandi en yfirskriftin í ár var: „Vöxtur í mótlæti – Að finna styrk og stöðugleika í vanlíðan. Þróun - nýsköpun - vísindi.“

Fjöldi fólks mætti til að hlýða á fjölbreytt erindi, sem fjölluðu um allt frá fjölskylduíhlutunum og stafrænum tæknilausnum við kvíðavanda, til jafningjastuðnings og ástæðna vímuefnaneyslu meðal fólks með geðrofsraskanir.