Fjölbreytt erindi á árlegri rannsóknarráðstefnu
31. mars 2026
Árleg rannsóknarráðstefna sérnámslækna í lyflækningum fór fram fyrir skemmstu. Þar kynntu sérnámslæknar fjölbreyttar rannsóknir sem tengdust allt frá sykursýki og lifrarskaða til blóðsýkinga.

Hörður Tryggvi Bragason sérnámslæknir fékk viðurkenningu fyrir besta ágripið og kynningu þess.
Auk kynninga á rannsóknum hélt nýdoktorinn Ólafur Pálsson erindi um sína upplifun af því að vera í vísindavinnu samhliða sérnámi og prófessorarnir Einar S. Björnsson og Björn Guðbjörnsson, heiðursvísindamaður Landspítala 2025, héldu erindi til hvatningar vísindavinnu sérnámslækna.
Veitt var viðurkenning fyrir besta ágripið og kynningu þess. Hana hlaut Hörður Tryggvi Bragason sérnámslæknir fyrir „ Þróun ífarandi pneumókokkasjúkdóms og dánartíðni á Íslandi 1975-2020: Lýðgrunduð langtímarannsókn.“ Hægt er að lesa viðtal við Hörð í febrúarútgáfu Spítalapúlsins (bls. 35). Þá er hægt að skoða ágripin af ráðstefnunni hér.

Björn Guðbjörnsson, heiðursvísindamaður Landspítala 2025.
