Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala

22. maí 2026

Ársfundur Landspítala fór fram í Hörpu í dag undir yfirskriftinni „Mælanlegur árangur.“

Í ávarpi sínu sagðist Runólfur Pálsson, forstjóri spítalans, telja að sú þróun sem hefur orðið innan einkarekinnar læknisþjónustu valdi kerfislægum óstöðugleika. Það komi fyrst og fremst til vegna þeirra áskorana sem skapast þegar hátt hlutfall sérfræðilækna er í hlutastarfi á spítalanum og gegna jafnframt aukastarfi utan hans þar sem tækifæri til tekjuöflunar eru mikil. Þessar áskoranir felist meðal annars í erfiðleikum við skipulag mönnunar, neikvæðum áhrifum á samfellu í þjónustu við sjúklinga og aðstandendur og ófullnægjandi þátttöku í kennslu og vísindastarfi.

Skortir stuðning frá stjórnvöldum

Runólfur bætti því næst við að það skjóti skökku við að greiðslur til sérgreinalækna samkvæmt rammasamningi fyrir verk þeirra á eigin stofu lúti ekki takmörkum líkt og greiðslur til spítalans fyrir verk innan þjónustutengdrar fjármögnunar. „Þetta er að sjálfsögðu alvarleg kerfislæg skekkja sem nauðsynlegt er að bregðast við með aðgerðum til að rétta hlut opinberrar heilbrigðisþjónustu. Ég hef í þessu samhengi vaxandi áhyggjur af uppbyggingu þekkingar og færni til framtíðar innan spítalans og sé stjórnvöld ekki sýna stuðning í verki þessu til handa. Þvert á móti hafa tillögur um afmörkun fjármuna til vísindastarfs ekki fengið brautargengi, sérnám í læknisfræði verið ófjármagnað árum saman og nú síðast ekki staðið við útgjöld vegna nýundirritaðra kjarasamninga lækna.“

Hér fyrir neðan er upptaka frá ársfundinum. Að auki má hér finna ársreikning og ársskýrslu Landspítala fyrir árið 2025. Þá hefur verið gefin út skýrsla um vísindastarf á Landspítala árið 2025.