Fagleg aðlögun erlendra hjúkrunarfræðinga á Íslandi
20. mars 2026
Ný eigindleg rannsókn sem hefur verið birt í alþjóðlegu ritrýndu tímariti, Nursing Open, Professional Adaptation of Foreign Nurses Working in Iceland: A Focus Group Study Guided by the Cross-Cultural Adjustment Model, varpar mikilvægu ljósi á faglega aðlögun erlendra hjúkrunarfræðinga innan íslenska heilbrigðiskerfisins.

Niðurstöðurnar veita gagnlega innsýn í mikilvæga þætti aðlögunar og inngildingar þeirra, fyrir stjórnendur, fræðsluaðila og klínísk teymi sem vilja styrkja móttöku, þátttöku og starfsþróun fjölbreytts mannauðs. Höfundar greinarinnar eru Wendill Viejo, Dr. Helga Bragadóttir og Dr. Marianne Elisabeth Klinke.
Rannsóknin byggir á rýnihópaviðtölum og sýnir að aðlögunarferlið er margþætt og nær yfir tungumál, samskipti, vinnustaðamenningu, faglega ábyrgð og félagslega þátttöku á vinnustað. Þættirnir fléttast saman og hafa bein áhrif á starfsöryggi, sjálfstraust og virkni í teymisvinnu.
Helstu niðurstöður benda til þess að:
Tungumálafærni sé lykilforsenda faglegs öryggis og virkra samskipta við sjúklinga og samstarfsfólk
Munur í verklagi og vinnustaðamenningu hérlendis og erlendis krefjist markvissrar leiðsagnar og skýrra væntinga
Skipulögð móttaka og handleiðsla flýti fyrir faglegri aðlögun og dragi úr óvissu
Stuðningur og viðhorf teymis hafi veruleg áhrif á tilfinningu starfsfólks fyrir þátttöku og viðurkenningu
Erlendir hjúkrunarfræðingar sýni frekar faglega skuldbindingu og aðlögunarhæfni ef viðeigandi stuðningur er til staðar
Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að líta á faglega aðlögun sem skipulagt ferli sem krefst samræmdra aðgerða á vinnustað, þar á meðal markvissrar fræðslu, handleiðslu, tungumálastuðnings og skýrs verklags í móttöku nýs starfsfólks. Slík nálgun styður bæði starfsfólkið og starfsemina þar sem hún eykur gæði þjónustu, styrkir teymisvinnu og stuðlar að heilbrigðu og inngildandi vinnuumhverfi.
