Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Færri sjúklingar með þrýstingssár

23. mars 2026

Þrýstingssár ógna öryggi sjúklinga og mat á algengi þeirra er viss mælikvarði á gæði heilbrigðisþjónustu. Hvert þrýstingssár lengir sjúkrahúsdvöl, er kostnaðarsamt fyrir samfélagið, eykur vinnuálag heilbrigðisstarfsfólks og veldur sjúklingum ómældri þjáningu. Flest þrýstingssár er hægt að fyrirbyggja og því ætti markmiðið að vera að ekkert þrýstingssár myndist á Landspítala.

Frá kynningu á niðurstöðum gæðakönnunar á þrýstingssárum.

Gerðar hafa verið gæðakannanir tengdar þrýstingssárum annað hvert ár á Landspítala frá árinu 2017 og sú síðasta fór fram þann 30. október 2025. Sjúklingum, 18 ára og eldri, sem lágu inni á 27 vefrænum legudeildum ásamt sjúklingum á bráðamóttöku sem biðu eftir plássi á legudeild, var boðin þátttaka og var þátttaka 90% (alls 464 sjúklingar).

Fengið var leyfi hjá framkvæmdastjórum hjúkrunar og lækninga til að framkvæma gæðakönnunina. Gagnasöfnun fór fram þennan eina dag þar sem húð sjúklinga var skoðuð, búnaður var metinn og skráning yfirfarin. Gagnasafnarar voru heilbrigðisstarfsfólk starfandi á Landspítala og þurftu þeir að fara í gegnum fræðslu um framkvæmdina áður en hún fór fram. Niðurstöður voru skráðar á staðlað eyðublað og ópersónugreinanlegar upplýsingar færðar inn í kannanakerfi.

Ánægjulegt er að hlutfallslega færri sjúklingar voru með þrýstingssár í gæðakönnuninni 2025 en að jafnaði í síðustu gæðakönnunum og hlutfall alvarlegra þrýstingssára er lægra. Engin fylgni var milli aukins algengis þrýstingssára og hækkandi aldurs. Líkt og í fyrri gæðakönnunum eru flest þrýstingssár á spjaldhrygg og hælum. Nokkuð skorti upp á að skráning tengd þrýstingssáravörnum og þrýstingssárum fylgdi skilgreindu verklagi og þar er tækifæri til umbóta. Búnaður eins og dýnur er í langflestum tilvikum í góðu ástandi. Skýrsla með niðurstöðum hefur verið send á stjórnendur og sérfræðinga í hjúkrun.

Þrýstingssáravarnir eru viðvarandi verkefni sem krefst framlags og samtakamátts stjórnvalda, heilbrigðisstarfsfólks sem og sjúklinga og aðstandenda þeirra. Það er von þeirra sem stóðu að þessari gæðakönnun að niðurstöður hennar geti stutt áfram við markvisst starf sem miðar að því að fækka þrýstingssárum.