Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Fækkun sjúklinga sem bíða eftir hjúkrunarrými ánægjuleg tíðindi

7. september 2026

Fjöldi einstaklinga sem liggja inn á Landspítala og eru með samþykkt færni- og heilsumat hefur sjaldan verið lægri ef litið er til undanfarinna ára. Síðustu 12 mánuði hafa verið opnuð 244 rými fyrir aldraða og er stefnt á að taka ríflega 400 til viðbótar í notkun á næstu tveimur árum.  

„Þetta eru mjög ánægjuleg tíðindi og við erum mjög glöð með það,“ sagði Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala, í viðtali við Morgunvaktina á Rás 1 síðastliðinn föstudag. Fyrst og fremst sé þetta mikilvægt fyrir bráðveikt eða slasað fólk sem komi inn á spítalann og hafi sýnt þeirri óásættanlega aðstöðu sem það hefur þurft að búa við mikinn skilning og umburðarlyndi. Að sama skapi skipti þetta starfsfólk spítalans máli, sem hafi þrátt fyrir allt náð að sinna sjúklingum vel og örugglega.

Runólfur tók þó fram að björninn væri ekki unninn. „Við höfum oft séð þessa stöðu í gegnum tíðina,“ sagði hann. Sveiflur geti verið miklar og örar og tók Runólfur sem dæmi að í október í fyrra hafi 60 sjúklingar með samþykkt færni- og heilsumat legið inni á Landspítala, en aðeins fjórum mánuðum síðar, í febrúar á þessu ári, hafi fjöldinn verið kominn upp í 128.

Runólfur sagði þakkarvert að ríkisstjórnin hafi sett á oddinn að fjölga hjúkrunarrýmum og skilgreint framkvæmdaáætlunin til ársins 2030 en það skipti miklu máli að hafa skýra tímalínu og vita hversu fljótt ný hjúkrunarrými sem hafa verið boðuð verða tekin í notkun, svo hægt sé að tryggja næg legurými fyrir sjúklinga. „Staðan í febrúar síðastliðnum var óásættanleg og við getum ekki sætt okkur við að lenda í þeirra stöðu aftur vegna þess að það skapar mikið óöryggi fyrir sjúklinga og þá þjónustu sem við erum að veita.“

Þróun bráðaþjónustunnar hefur verið í forgangi

Runólfur var einnig spurður út í bráðaþjónustu Landspítala og sagði hann þróun hennar hafa verið í forgangi síðustu ár. Hægt sé að flokka einstaklinga betur í gegnum samskipti áður en þjónustunnar er leitað. Þegar hafi skref verið tekið í þá átt með 1700 símanúmeri Upplýsingamiðstöðvar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins þar sem fólk getur leitað ráða. „Við viljum stýra fólki í mismunandi úrræði svo það komi ekki allir á sama staðinn og kannski allt of margir á sama tíma,“ sagði Runólfur.

Í því skyni hafi verið sett á laggirnar bráðadagdeild lyflækninga sem er opin til kl. 20 á kvöldin og um helgar. Þangað er hægt að beina strax þeim sem eru með aðkallandi vandamál en ekki svo alvarleg veikindi að það þurfi á þjónustu bráðmóttökunnar að halda. Því til viðbótar standi til að opna 20 rúma bráðamatsdeild um mánaðamótin september/október sem er hugsuð fyrir fyrstu 72 klst. meðferðar. „Þetta er kallað matsdeild því það er líka verið að meta vandann og taka afstöðu til þess hvort viðkomandi geti síðan farið heim eða þurfi þjónustu annars staðar á spítalanum. Fólk getur komið þarna frá bráðamóttökunni en líka frá öðrum einingum spítalans, jafnvel heilsugæslu, í gegnum samskipti sem eiga sér stað þannig að það fer í raun fram stýring af okkar hálfu í hvaða úrræði sjúklingum skuli beint: bráðamóttöku, bráðadagdeild lyflækninga eða jafnvel beint inn á bráðamatsdeild.“ Þarna sé því um að ræða markvissari þjónustu fyrir viðfangsefni af mismunandi toga heldur en áður hefur verið. Það ætti í kjölfarið að skapa meira rými inni á bráðmóttökunni til að sinna þeim alvarlegu málum sem þar eiga heima.

Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni hér.