Fá hvíld frá veikindum með Kúnstpásu
14. janúar 2026
Kúnstpása er verkefni innan geðþjónustu Landspítala sem felst í því að tengja geðendurhæfingu við skapandi greinar. Annað árið í röð er Kúnstpása í samstarfi við Borgarleikhúsið þar sem fólk lærir meðal annars spuna og setur upp frumsamið verk á Nýja sviðinu.

Leiklist gefur fólki tækifæri til að vinna með öðrum, brjóta upp einangrun og fá hvíld frá sjálfum sér og sínum raunveruleika með því að stíga inn í annan karakter, segja þær Emelía Antonsdóttir Crivello, skóla- og verkefnastjóri Borgarleikhússins, og Steinunn Arinbjarnardóttir, leikkona og leiklistarkennari.
Í meðfylgjandi myndbandi er rætt við Emelíu, Steinunni og Hlyn Jónasson, verkefnastjóra Kúnstpásu.
