Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Eva Jónasdóttir ráðin yfirlæknir fæðingarteymis

22. júní 2026

Eva Jónasdóttir hefur verið ráðin í starf yfirlæknis fæðingarteymis við Landspítala og mun taka við starfinu þann 1. ágúst nk.

Eva er sérfræðingur í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum. Hún útskrifaðist sem læknir frá Háskóla Íslands árið 2005 og tók í kjölfarið kandídatsárið á Landspítala. Að því loknu fékk Eva sérnámsstöðu í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum og árið 2011 flutti hún sig yfir til Karolinska sjúkrahússins í Stokkhólmi og lauk þaðan sérnámi sínu árið 2013. Frá þeim tíma hefur hún unnið bæði á Landspítala og á einkastofu ásamt því að hafa sinnt ýmsum störfum tengdum fagi sínu, m.a. leitt skýrslugerð Fæðingarskráningar. Eva er þaulreynd á sínu sviði og hefur unnið við kvenna- og fæðingarþjónustu á Landspítala síðustu 13 ár.

„Fæðingarþjónusta Landspítala sinnir konum á meðgöngu, í fæðingu og sængurlegu af öllu landinu. Rúmlega 3.000 börn fæðast árlega á Landspítala sem er rúmlega 70% af öllum fæðingum á landinu. Það er mér mikill heiður að fá að leiða starfsemi fæðingarþjónustunnar þar sem framúrskarandi starfsfólk sinnir sínu mikilvæga hlutverki af mikilli fagmennsku og alúð. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum í starfi yfirlæknis, skapa gott og hvetjandi vinnuumhverfi og leitast eftir að veita þá bestu þjónustu í barneignarferlinu sem völ er á.“