ERAS flýtibatameðferð eykur öryggi og ánægju sjúklinga
26. mars 2026
Með tilkomu ERAS (e. Enhanced Recovery After Surgery) hefur orðið bylting í þjónustu við skurðsjúklinga. Þessi aðferðafræði er hluti af daglegri starfsemi á skurðdeildum Landspítala, þar á meðal á dagdeild skurðlækninga A5 í Fossvogi meðal annars til að tryggja örugga og skilvirka útskrift samdægurs.

ERAS leggur ríka áherslu á teymisvinnu og sameiginlega ábyrgð. ERAS virkar einungis ef mismunandi heilbrigðisstéttir og sjúklingurinn vinna saman. Þess vegna er meginreglan í ERAS „Einn sjúklingur – eitt ferli – eitt teymi.“ Hafa verður í huga að ERAS er ekki verklag sem er innleitt einu sinni – það er hugarfar sem þarf að byggja upp, mæla og þróa stöðugt.
Lykilatriði ERAS:
Undirbúningur fyrir aðgerð Hugmyndafræðin er einföld: Því betra líkamlegu og andlegu formi sem sjúklingurinn er í þegar hann fer í aðgerðina, því hraðari bata nær hann. Fræðsla til sjúklinga miðar að því að eyða óvissu því þegar sjúklingurinn veit hvers er vænst af honum, minnkar kvíði sem og líkur á fylgikvillum eftir aðgerð. Enn fremur hafa rannsóknir sýnt að vel upplýstir sjúklingar upplifa minni sársauka og ótta. Með því að skilja ferlið verður sjúklingurinn mikilvægur liðsmaður í teyminu frekar en „viðfangsefni“.
Næring Í stað strangrar föstu í marga klukkutíma, er mælt með inntöku kolvetnaríkra drykkja allt að tveimur klukkustundum fyrir svæfingu til að viðhalda efnaskiptajafnvægi, bæta sykurstjórnun og draga úr ógleði eftir aðgerð. Áhersla er lögð á próteinríka næringu fyrir aðgerð sem hjálpar til við að byggja upp vöðva og flýtir fyrir sáragræðslu. Næg vökvainntekt tryggir góða blóðrás til líffæra og nýrna, sem verndar þau fyrir álagi svæfingalyfja. Samkvæmt ERAS aðferðarfræðinni eru sjúklingar hvattir til að borða og drekka nánast strax eftir aðgerð til að koma hreyfingu á þarmana á ný. Þetta dregur úr hættu á garnalömun í þörmum, sem er algengur fylgikvilli stórra aðgerða.
Snemmbúin hreyfing Eitt mikilvægasta hlutverk sjúklingsins er að fara fram úr rúminu eins fljótt og auðið er, oftast innan fárra klukkustunda frá því að hann vaknar úr svæfingu. Snemmhreyfing er vörn gegn alvarlegum fylgikvillum eins og blóðtappa, lungnabólgu og samfalli á lunga. Snemmhreyfing hefur bein áhrif á hvernig líkaminn vinnur úr þeirri streitu sem fylgja aðgerðinni. Til dæmis getur sjúklingurinn strax á vöknun byrjað á að gera einfaldar fótaæfingar í rúmi til að örva blóðrás og setjast á rúmstokkinn. Að sitja uppréttur bætir lungastarfsemi. Þegar sjúklingurinn er kominn á deild getur hann staðið upp og gengið nokkur skref að stól því markmiðið er að eyða sem minnstum tíma í rúminu. Jafnt og þétt er hægt að bæta við hreyfingu til dæmis með göngu- og stigaæfingum með það að leiðarljósi að tryggja að sjúklingur verði öruggur heima. Rannsóknir hafa sýnt fram á að sjúklingar sem hreyfa sig mikið útskrifast fyrr, þurfa minni verkjalyf og upplifa betri andlega vellíðan.
Ávinningur fyrir Landspítala og sjúklinga
Markviss notkun ERAS á dagdeildum snýst ekki einungis um að koma sjúklingum eins hratt og mögulegt er heim, heldur um að bæta gæði meðferðarinnar.
Betri líðan: Sjúklingar upplifa minni verki, minni ógleði og skjótari bata.
Færri fylgikvillar: Rannsóknir sýna að ERAS dregur úr hættu á sýkingum og blóðtappa.
Hagkvæmni: Með því að hámarka flæði á dagdeildum nýtast fjármunir og rúmapláss spítalans betur fyrir þá sem þurfa á innlögn að halda.
ERAS er ekki einangruð aðferð heldur menningar- og viðhorfsbreyting innan heilbrigðiskerfisins. Á dagdeild skurðlækninga A5 á Landspítala gerir þessi hugmyndafræði það að verkum að hægt er að framkvæma flóknari aðgerðir með meira öryggi og meiri ánægju sjúklinga en áður var talið mögulegt.
