Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Elva Björk ráðin deildarstjóri

9. nóvember 2026

Elva Björk Ragnarsdóttir hefur verið ráðin deildarstjóri á bráðadagdeild lyflækninga frá 1. nóvember 2026.

Elva er hjúkrunarfræðingur og hefur fjölbreytta reynslu af stjórnunarstörfum, bráðaþjónustu, heilsugæslu og fjarhjúkrun. Frá árinu 2019 hefur hún gegnt starfi fagstjóra hjúkrunar hjá Læknavaktinni þar sem hún hefur borið ábyrgð á faglegri starfsemi, mannauðsmálum og rekstri. Samhliða því hefur hún starfað sem hjúkrunarfræðingur á Heilsugæslu Miðbæjar.

Áður starfaði Elva meðal annars á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi, á brjóstholsskurðdeild háskólasjúkrahússins í Lundi í Svíþjóð og við símaráðgjöf og fjarhjúkrun. Hún sat jafnframt í vinnuhópi á vegum heilbrigðisráðuneytisins um framtíðarfyrirkomulag vegvísunar og fjarráðgjafar í heilbrigðiskerfinu.

Elva lauk BS-prófi í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2007. Árið 2024 lauk hún meistaraprófi í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði frá Háskólanum í Reykjavík.

„Ég hlakka mikið til að vinna að áframhaldandi uppbyggingu bráðadagdeildar með því öfluga starfsfólki sem þar starfar. Markmið mitt er að sjúklingar fái örugga og góða þjónustu á réttum stað og oft þarf ekki innlögn til þess. Uppbygging heimaspítala er því afar spennandi verkefni og þar skipta góð samvinna, skýrir verkferlar og traust starfsumhverfi öllu máli. Ég mun leggja mitt af mörkum til að skapa vinnustað þar sem fólki líður vel og fær að blómstra, því það er forsenda góðrar þjónustu.“