Ellen S. Björnsdóttir heiðruð í flokknum Vinnustaðurinn okkar
6. júlí 2026
Ellen Stefanía Björnsdóttir, hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku, var á ársfundi Landspítala í maí sl. heiðruð í flokknum Vinnustaðurinn okkar.

Ellen er þrautreynd enda byrjaði hún á bráðamóttökunni vorið 1980. Hún segist muna eftir því að hafa verið „tekin í bakaríið“ þegar hún var nýbyrjuð og hafa í kjölfarið hugsað að hún myndi aldrei láta öðrum líða eins og henni leið þá. „Frekar reyni ég að hjálpa og ýta undir og hvetja og reyna að vera jákvæð, vegna þess að það eru allir að gera sitt besta.“
Úr tilnefningu: „Ellen er leiðtogi innan bráðahjúkrunar á Landspítala. Hún er sú sem samstarfsfólk leitar til vegna reynslu sinnar, þekkingar og innsýnar. Hún er fyrirmynd og frábær samstarfsfélagi sem sýnir einstaka hlýju, fagmennsku og gleði í starfi. Framlag Ellenar til Landspítala er ómetanlegt. Þar sem Ellen er þar er gaman“.
