Elín Ögmundsdóttir heiðruð fyrir öryggi
20. júlí 2026
Elín Ögmundsdóttir, sérfræðingur í gjörgæsluhjúkrun nýbura á Vökudeild, var heiðruð í flokknum Öryggi á ársfundi Landspítala sem fram fór í vor.

Elín hefur starfað á Vökudeildinni í 34 ár og séð um fræðslu til starfsfólks. „Það sem mér þykir vænst um er þegar ljósmæður koma til mín sem hafa sótt námskeiðið og segja mér frá tilfellum þar sem þær hafa upplifað svo mikið aukið öryggi af því þær voru búnar að fara á þetta námskeið.“
Úr tilnefningu: „Elín hefur lyft grettistaki í að efla fræðslu innan deildarinnar. Hún heldur utan um fræðslu nýs starfsfólks og er ötul í að hvetja samstarfsfólk til sí- og endurmenntunar. Hún hefur næmt auga fyrir hæfileikum annarra og styður samstarfsfólk til að verða góðar fyrirmyndir, sem styrkir bæði faglegt öryggi starfsfólks og öryggi sjúklinga.“
