Breytingar á gönguleið
22. janúar 2026
Vegna jarðvegsframkvæmda NLSH fyrir nýja matsdeild við bráðamóttöku Landspítala lengist gönguleiðin á milli almennu bílastæðanna og bílastæða við bráðamóttökuna (sjá bláa merkingu á mynd).

Framkvæmdirnar eru fyrsti verkþáttur í uppbyggingu matsdeildarinnar í Fossvogi.
