Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Breytingar á endurhæfingarþjónustu vegna viðhaldsframkvæmda á Landakoti

14. september 2026

Fyrirhugaðar eru breytingar á starfsemi endurhæfingarþjónustu Landspítala á Landakoti vegna viðhaldsframkvæmda sem fram undan eru í húsnæðinu.

Framkvæmdirnar kalla á breytingar á nýtingu húsnæðis og tilfærslu á starfsemi innan Landakots. Í tengslum við þær hefur verið ákveðið að flytja starfsemi Brotaendurhæfingardeildar L1 í núverandi húsnæði Öldrunardeildar L3.

Samhliða flutningnum verður starfsemi Öldrunardeildar L3 lögð niður og húsnæði deildarinnar nýtt undir brotaendurhæfingu.

Markmiðið er að tryggja áframhaldandi brotaendurhæfingarþjónustu á meðan á viðhaldsframkvæmdum stendur og nýta það húsnæði sem er til staðar á Landakoti með sem bestum hætti.