Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Bráðamatsdeildin tekur á sig mynd

22. júní 2026

Framkvæmdir eru nú í fullum gangi við nýja bráðamatsdeild Landspítala, sem til stendur að opna 1. september nk.

Bráðamatsdeild sinnir fjölbreyttum hópi sjúklinga með bráð veikindi sem þurfa umfangsmeira mat og meðferð en unnt er að veita á bráðamóttöku. Markmið deildarinnar er að greina og hefja meðferð snemma, tryggja aðkomu reynds fagfólks og koma sjúklingum hratt í viðeigandi úrræði innan eða utan spítalans.

Deildin mun rúma 20 sjúklinga og vinnur þverfaglegt teymi saman að því að greina sjúklingana og veita þeim meðferð.

Í myndbandinu er rætt við Hrönn Guðbjartsdóttur, deildarstjóra bráðamatsdeildar, Hlyn Indriðason, yfirlækni almennrar lyflækningadeildar, Hólmfríði Gylfadóttur, klínískan lyfjafræðing, og Þóru Björgu Sigurþórsdóttur, yfirsjúkraþjálfara í Fossvogi.