Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Bráðamatsdeildin skipulögð

27. febrúar 2026

Nú standa yfir framkvæmdir í Fossvogi og innan skamms verður þar opnuð bráðamatsdeild í nýrri viðbyggingu.

Framkvæmdir eru í fullum gangi. Mynd/NLSH

Deildin er viðbót við bráðaþjónustu Landspítala og er ætlað að dreifa álagi þannig að betur verði hægt að ráða við vaxandi verkefni. Skipulag deildarinnar verður að breskri fyrirmynd og hafa sérfræðingar þaðan verið Landspítala innan handar við undirbúning.

Í meðfylgjandi myndbandi er rætt við Rafn Benediktsson, framkvæmdastjóra bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítala, Vicky Price, forseta Félags bráðalyflækna í Bretlandi, Bethany Griffith bráðalyflækni og Hannah Hegarty, sérfræðing í hjúkrun.