Bráðamatsdeild styttir bið eftir innlögn um tæpan helming
29. október 2026
Eftir að bráðamatsdeildin hóf starfsemi sína eru að meðaltali 10 færri staddir á bráðamóttökunni á hverjum tíma.

Opnun bráðamatsdeildar lyflækninga þann 29. september sl. hefur þegar stytt bið sjúklinga á bráðamóttöku eftir innlögn á spítalann umtalsvert, þrátt fyrir svipaða eða eilítið aukna aðsókn á árinu. Einn aðaltilgangurinn með stofnun deildarinnar var einmitt að draga úr þessari bið, og þannig bæta flæðið og skapa örugga og skilvirka þjónustu. Um leið batna vinnuaðstæður á bráðamóttökunni sjálfri til hagsmuna fyrir bæði sjúklinga og starfsfólk.

Að jafnaði bíða nú um helmingi færri einstaklingar eftir innlögn frá bráðamóttökunni sé miðað við meðaltal þriggja mánaða fyrir opnun bráðamatsdeildarinnar. Skýrasta vísbendingin um bætt flæði er stytting biðtímans frá komu og þar til einstaklingur fer af bráðamóttökunni á legudeild. Mánuðinn áður en bráðamatsdeildin var opnuð var þessi bið að meðaltali 26,5 klst. en er nú 15,2 klst., sem samsvarar 43% styttingu. Þessi bið var 29,4 klst. að meðaltali fyrir allt árið 2026 fram að opnun bráðamatsdeildarinnar. Tilkoma deildarinnar hefur því leitt til minni örtraðar – færri eru staddir á bráðamóttökunni á hverjum tíma. Þannig eru að meðaltali um 10 færri staddir á bráðamóttökunni á hverjum tíma í október sé miðað við meðaltal þriggja mánaða þar á undan. Að sögn Rafns Benediktssonar, framkvæmdastjóra bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítala, á frekari reynsla eftir að komast á bráðamatsdeildina og eflaust fullsnemmt að slá föstu um áhrif hennar á bráðamóttökuna, en þessar fyrstu tölur lofi góðu.

Hvað er bráðamatsdeild?
Bráðamatsdeildin er byggð að breskri fyrirmynd. Þar fá bráðveikir sjúklingar markvisst þverfaglegt mat og meðferð, og ákvörðun um framhaldið er tekin sem fyrst. Markmiðið er að sjúklingar dvelji að jafnaði ekki lengur en 72 klukkustundir á deildinni.
Á fyrstu þremur vikunum tók bráðamatsdeild á móti 242 sjúklingum, eða um 11 á dag. Meðaldvölin var rúmur sólarhringur og rúmlega þriðjungur sjúklinga fór beint heim af deildinni. Starfsemi deildarinnar byggir á nánu samstarfi margra starfsstétta. Auk lækna, hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða er viðvera sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa og klínískra lyfjafræðinga meiri en tíðkast hefur. Um helmingur sjúklinga kemur á deildina milli kl. 16 og 21, þegar álagið á bráðamóttöku er mest.



