Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Björg safnar blóði á Norðurlandi

27. maí 2026

Nýr bíll Blóðbankans var fyrir skömmu afhentur með viðhöfn í Kringlunni.

Bíllinn var í kjölfarið keyrður norður til Akureyrar þar sem hans heimastöð verður. Bíllinn, sem hefur fengið nafnið Björg, mun ferðast vítt og breitt um Norðurland og gera fólki kleift að gefa blóð á sínum heimaslóðum.

Við hönnun bílsins var horft til sjálfbærni, sveigjanleika og aukins aðgengis. Hann nýtir eigin raforku með sólarsellum og er því ekki háður rafmagnstengingu á söfnunarstað. Með þessu skapast auknir möguleikar til blóðsöfnunar víðs vegar um landið og þannig er vonast til að fleiri sjái sér fært að gefa blóð.

Viðmælendur í myndbandinu eru Björn Rúnar Lúðvíksson, framkvæmdastjóri klínískrar rannsókna- og stoðþjónustu Landspítala, Hanna Vigdís Jóhannesdóttir, hjúkrunarfræðingur hjá Blóðbankanum á Akureyri, Hákon Róbert Jónsson blóðgjafi og Davíð Stefán Guðmundsson, formaður Blóðgjafafélags Íslands.