Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Aukning tilvísana í átröskunarteymi barna- og unglingageðdeildar

13. febrúar 2026

Á síðasta ári komu fleiri tilvísanir og fleiri börn í þjónustu átröskunarteymis BUGL en síðustu ár. Þróunin er alvarleg og teymið hvetur forráðamenn til að fylgjast vel með heilbrigði barna sinna.

Árið 2025 var fjöldi tilvísana 56 en árið áður var fjöldinn 40. Árið 2019 bárust átröskunarteyminu 24 tilvísanir.

Gott er að hafa í huga þegar kemur að heilbrigðu sambandi við mat og líkama hjá börnum/unglingum:

  • Fylgjast með breyttri hegðun í kringum mat.

  • Mikil áhersla á líkama og útlit. Neikvætt tal um líkama, þyngd og lögun - hafa í huga að slíkt tal hjá hinum fullorðnu leiðir oft til álíka hugarfars og tals hjá þeim yngri.

  • Breytingar á skapi og líðan. Aukin einangrun, pirringur, depurð og kvíði. Fullkomnunarárátta og miklar kröfur til sjálfs sín.

  • Hreyfing. Of mikill eða áráttukenndur líkamsræktarvilji. Vanlíðan eða kvíði ef hreyfing fellur niður og/eða hreyfing notuð til að „bæta upp“ fyrir mat.

  • Líkamleg viðvörunarmerki. Til dæmis þreyta, svimi, kulvísi, höfuðverkir, magaverkir eða óreglulegar hægðir. Hægur vöxtur eða seinkun a kynþroska. Tíðarteppa hjá stúlkum