Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Aukin áhersla á stuðning við aðstandendur í geðþjónustunni

8. maí 2026

Á undanförnum árum hefur geðþjónustan lagt aukna áherslu á stuðning við aðstandendur.

Rannsóknir og reynsla sýna að aðstandendur upplifa oft skort á fræðslu, upplýsingum og stuðningi innan geðheilbrigðisþjónustu. Því hefur efling aðstandendastuðnings verið skilgreind sem eitt af lykilverkefnum, í samræmi við geðheilbrigðisáætlun til 2030 þar sem lögð er áhersla á virka þátttöku aðstandenda í þróun þjónustunnar.

Stuðningur við aðstandendur þarf ekki að vera flókinn. Mikilvægast eru opin og traust samskipti við heilbrigðisstarfsfólk, virðing og virk hlustun, auk þess að tekið sé mið af reynslu þeirra. Aðstandendur hafa jafnframt þörf fyrir fræðslu og stuðning til að hlúa að eigin líðan. Í sumum tilvikum getur verið þörf á sérhæfðari úrræðum, svo sem einstaklingsviðtölum, styrkleikamiðuðum meðferðarsamræðum eða fjölskyldumeðferð.

Bætt þjónusta við aðstandendur styrkir þjónustu við sjúklinga

Innan nokkurra eininga geðþjónustunnar hefur þegar verið byggð upp markviss vinna með aðstandendum. Þar má nefna sjúkdómafræðslu, reglubundna fjölskyldufundi með skipulögðu fundarefni og jafningjastuðning undir leiðsögn fagaðila. Margir aðstandendur nefna að það að hitta aðra í svipuðum sporum sé eitt það gagnlegasta í þeirra stöðu.

Unnið er að því að efla þjónustu við aðstandendur á bráðalegudeildum, meðal annars með því að tryggja að allir aðstandendur hafi aðgang að sérstökum tengilið. Tengiliðurinn getur komið úr röðum ólíkra fagstétta og endurspeglar sú nálgun áherslu á þverfaglega teymisvinnu í þjónustunni.

Með bættri og samhæfðri þjónustu við aðstandendur styrkjum við jafnframt þjónustu við sjúklinga. Aðstandendur sem fá stuðning eru betur í stakk búnir til að styðja sína nánustu, sem getur haft jákvæð áhrif á batahorfur, dregið úr endurinnlögnum og minnkað líkur á bakslagi.

Aðstandendur eru mikilvægir samstarfsaðilar í bataferli

Sem liður í þessari þróun var nýverið boðið upp á tvískipta fræðsluröð fyrir aðstandendur, opna öllum óháð þjónustustigi. Fræðslan var í höndum hjúkrunarfræðinga, félagsráðgjafa og sálfræðings. Fjallað var meðal annars um hlutverk aðstandenda, umönnunarbyrði, algengar tilfinningar og samskipti, auk mikilvægis þess að setja mörk. Um 30 aðstandendur sóttu fræðsluna og voru viðbrögð afar jákvæð. Líflegar og gagnlegar umræður sköpuðust, ekki síst milli þátttakenda sjálfra, og ljóst að áfram verður unnið að þróun þjónustu af þessu tagi.

Aðstandendur eru ekki gestir á geðdeildum – þeir eru mikilvægir samstarfsaðilar í bataferli. Með því að hlúa að bæði sjúklingum og aðstandendum er hægt að styrkja heildræna þjónustu og ná betri árangri.