Fara beint í efnið
Landspítali Forsíða
Landspítali Forsíða

Landspítali

Aukið samstarf um menntun lækna í fíknilækningum

15. apríl 2026

Landspítali hefur efnt til aukins og markvissara samstarfs við SÁÁ um menntun lækna í fíknilækningum. Markmiðið er að efla þekkingu og reynslu lækna af meðhöndlun fólks sem glímir við fíknisjúkdóma og tryggja þannig betri og heildrænni þjónustu við sjúklinga.

Tómas Þór Ágústsson, framkvæmdastjóri lækninga á Landspítala, og Valgerður Rúnarsdóttir, yfirlæknir á Vogi, undirrita samstarfssamning milli spítalans og SÁÁ.

Fíkn er algengur vandi meðal sjúklinga á mörgum sviðum heilbrigðisþjónustunnar og snertir þjónustu þeirra langt umfram sérhæfða fíknimeðferð. Því er mikilvægt að læknar af ólíkum starfsvettvangi hafi trausta innsýn í greiningu, meðferð og eftirfylgd einstaklinga með fíknisjúkdóma, sem oft fara saman við aðra alvarlega heilsufars- og félagslega erfiðleika.

Með nýju samstarfi gefst sérnámslæknum í fjölda greina kostur á að starfa í nokkra mánuði hjá SÁÁ sem hluta af sérnámi sínu. Þar öðlast þeir dýrmæta klíníska reynslu, kynnast þverfaglegu samstarfi og fá betri skilning á lífsferli fíknisjúkdóma.