Ársfundur Landspítala 2026
18. maí 2026
„Mælanlegur árangur“ er yfirskrift ársfundar Landspítala, sem haldinn verður í Hörpu næstkomandi föstudag.

Á fundinum verður fjallað um mælanlegan árangur á hinum ýmsu sviðum spítalans, tilkynnt verður um ungan vísindamann og heiðursvísindamann Landspítala auk þess sem starfsfólk verður heiðrað.
Á fundinum verða einnig pallborðsumræður um nýtingu gervigreindar í heilbrigðisþjónustu.
Ársfundur Landspítala er öllum opinn og verður einnig í beinni útsendingu á miðlum Landspítala. Upptaka verður aðgengileg að fundi loknum.
Kaffiveitingar verða í boði.
Beint streymi frá fundinum má nálgast hér.

