Árlegur leiðtogafundur NUHA í Osló
7. maí 2026
Stjórnendur og sérfræðingar frá Samtökum norrænna háskólasjúkrahúsa (Nordic University Hospital Alliance, NUHA), sem samanstendur af háskólasjúkrahúsum í Reykjavík, Osló, Kaupmannahöfn, Stokkhólmi og Helsinki, komu saman í Osló dagana 4.–5. maí sl. á árlegum leiðtogafundi NUHA.

Á fundinum tók Háskólasjúkrahúsið í Osló formlega við formennsku fyrir tímabilið 2026–2028 en hún var áður í höndum Rigshospitalet í Danmörku.
Af því tilefni lagði Bjørn Atle Lein Bjørnbeth, forstjóri Háskólasjúkrahússins í Osló, áherslu á bæði ábyrgðina og tækifærin sem felast í því að taka við formennskunni: „Að taka við formennsku NUHA er bæði heiður og skuldbinding. Við hlökkum til að byggja á þeim sterka grunni sem Danmörk hefur lagt og efla enn frekar norrænt samstarf til hagsbóta fyrir sjúklinga, fagfólk og samfélagið.“
Á fundinum í Osló komu saman forstjórar, stýrihópur, ábyrgðaraðilar lykilverkefna, leiðtogar vinnuhópa o.fl. frá öllum fimm NUHA-sjúkrahúsunum. Áhersla var lögð á að styrkja samstarf yfir landamæri og skilgreina raunhæfar aðgerðir sem skila mælanlegum árangri, bæði til skemmri og lengri tíma. Á fundinum var ársskýrsla NUHA kynnt, Háskólasjúkrahúsið í Osló tók formlega við formennsku NUHA og rætt var um hvernig hægt sé að nýta með bestum hætti norræna styrkleika í heilbrigðisþjónustu. Haldnar voru vinnustofur og lauk fundinum með sameiginlegri veggspjaldasýningu þar sem hópar kynntu árangur og næstu skref.

Samstarfið í NUHA til hagsbóta fyrir sjúklinga og fagfólk
Matti Bergendahl, forstjóri Háskólasjúkrahússins í Helsinki, lagði áherslu á hversu mikilvægt samstarf er þegar tekist er á við sameiginlegar áskoranir: „Ekkert sjúkrahús getur eitt og sér leyst þær flóknu áskoranir sem heilbrigðisþjónustan stendur frammi fyrir. Í gegnum NUHA byggjum við upp traust, deilum þekkingu og þróum lausnir saman – til hagsbóta fyrir bæði sjúklinga og fagfólk. Árlegi leiðtogafundurinn er lykilatriði í að tryggja að samstarfið haldist markvisst og byggi á raunverulegum klínískum og rekstrarlegum þörfum.“
Á meðal viðstaddra var Hans Tómas Björnsson, yfirlæknir á erfða- og sameindalæknisfræðideild Landspítala, sem hefur rannsakað sjaldgæfa sjúkdóma: „Að vinna við hlið kollega frá Norðurlöndunum hefur gert okkur kleift að vinna hraðar og vera metnaðarfyllri. Aðgerðirnar sem við samþykktum í Osló að ráðast í eru skýrar og framkvæmanlegar – og það er afar hvetjandi.“
Nánar er hægt að lesa um leiðtogafund NUHA í Osló hér.
